Þessi vefsíða notar vafrakökur til að tryggja bestu upplifun. Sjá nánar í persónuverndarstefnu.

    Persónuverndarstefna Think Software

    Við leggjum áherslu á að persónuupplýsingar þínar séu öruggar.

    Hvað eru persónuupplýsingar?

    Allar upplýsingar sem hægt er að tengja við þig — nafn, kennitala, netfang, símanúmer, staðsetning, ljósmynd og þess háttar.

    Hvaða gögn söfnum við?

    Þegar þú heimsækir vefinn okkar skráum við grunnupplýsingar eins og IP-tölu, vafra, stýrikerfi og tímasetningu heimsóknar. Ef þú fyllir út fyrirspurnarform söfnum við þeim upplýsingum sem þú gefur upp. Þessi gögn notum við eingöngu til að bæta vefinn og þjónustu okkar.

    Deilum við upplýsingum með öðrum?

    Nei. Við deilum aldrei persónuupplýsingum með þriðja aðila nema formlegt samþykki verkkaupa liggi fyrir.

    Hvernig verndum við gögnin þín?

    Við notum aðskilda netþjóna í þremur löndum, daglegar öryggisafritanir á tvo aðra staði, strangt aðgangsstýrt umhverfi og DDOS-vörn.

    Réttindi þín

    Samkvæmt persónuverndarlögum átt þú rétt á að fá aðgang að upplýsingum þínum, leiðrétta þær, óska eftir eyðingu, andmæla eða takmarka vinnslu, flytja gögnin þín, draga samþykki til baka og leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd. Réttur til eyðingar er ekki fortakslaus — lög geta kveðið á um varðveisluskyldu.

    Spurningar?

    Sendu okkur línu á info@thinksoftware.is