Þjónusta

Vefsíðugerð sem skilar árangri

Við höfum smíðað vefsíður, netverslanir og vefkerfi fyrir íslensk fyrirtæki síðan 1999. Hönnun, forritun, vefumsjón og leitarvélabestun — allt á einum stað.

Sjá alla þjónustu

Fyrir hverja við smíðum

Fyrirtækjavefir

Vefsíður sem selja þjónustuna þína og byggja traust frá fyrstu sekúndu.

Netverslanir

Verslun sem er þægileg í rekstri og skilar sölu — ekki bara falleg mynd.

Sérlausnir og vefkerfi

Innskráningarsvæði, bókunarkerfi, leitarlausnir og tengingar við önnur kerfi.

Hvað er innifalið

Hönnun og notendaupplifun

Sérsniðin hönnun sem endurspeglar vörumerkið þitt — engin tilbúin sniðmát.

Forritun frá grunni

Hraðar, öruggar vefsíður byggðar á nútímatækni sem stenst álag.

Vefumsjónarkerfi (CMS)

Þú uppfærir efni sjálf/ur — einfalt viðmót, engin tækniþekking nauðsynleg.

Netverslun

Vöruskrá, greiðslulausnir, sendingar og tenging við bókhalds- og lagerkerfi.

Leitarvélabestun (SEO)

Tæknileg SEO, hraði, uppbygging og lýsigögn frá fyrsta degi.

Rekstur og viðhald

Hýsing, öryggisuppfærslur, afrit og stuðningur eftir að vefurinn fer í loftið.

Svona vinnum við

01

Greining

Við kortleggjum markmið, markhóp og samkeppni.

02

Hönnun

Við teiknum uppbyggingu og útlit. Þú samþykkir áður en lengra er haldið.

03

Forritun

Við smíðum vefinn, setjum inn efnið og prófum allt.

04

Afhending

Vefurinn fer í loftið með mælingum og SEO.

05

Umsjón

Við sjáum um uppfærslur, öryggi og breytingar. Þú ert ekki einn eftir opnun.

Verð ræðst af umfangi verkefnisins — við gerum fast tilboð eftir stutt greiningarsamtal, án skuldbindingar.

Viðskiptavinir

Við vinnum með frábærum fyrirtækjum

Algengar spurningar

Hvað kostar vefsíðugerð?

Verðið ræðst af umfangi — kynningarvefur er mun einfaldari en netverslun eða sérsniðið vefkerfi. Við gerum fast tilboð eftir stutt greiningarsamtal, þér að kostnaðarlausu.

Hvað tekur langan tíma að gera vefsíðu?

Einfaldur fyrirtækjavefur tekur yfirleitt 3–6 vikur frá greiningu að sjósetningu. Stærri verkefni, netverslanir og sérlausnir taka lengri tíma og eru unnin í áföngum.

Get ég uppfært efnið sjálf/ur?

Já. Við skilum vefnum með vefumsjónarkerfi þar sem þú getur breytt texta, myndum og síðum án þess að þurfa að hafa samband við okkur.

Sjáið þið líka um hýsingu og viðhald?

Já. Við bjóðum hýsingu, öryggisuppfærslur, afrit og áframhaldandi þróun — með eða án SLA samnings.

Er leitarvélabestun innifalin?

Tæknileg SEO er alltaf hluti af smíðinni: hraði, uppbygging, lýsigögn og skipulögð gögn. Efnisvinnu og áframhaldandi SEO bjóðum við sem sérstaka þjónustu.

Samband

Segjum meira
við kaffi?

Segðu okkur frá hugmyndinni og við skoðum hana saman — ekkert mál, engin skuldbinding.